Velkomin um borð í Björn Jónsson ÞH-345
Sendið okkur fyrirspurnir og við munum einnig aðstoða við að skippuleggja ferð að eigin
ósk. Hámarksfjöldi í ferð eru 20 farþegar. Veður getur haft áhrif á ferðir.
Norður yfir Heimskautsbaug.
Áætlun alla daga í sumar frá 10. júní til 30. september. Siglt verður norður yfir heimsskautsbaug. Frá Raufarhöfn verður siglt norður með landinu og að Hraunhafnartanga sem er nyrsti tangi landsins og þaðan norður yfir heimsskautslínu sem er mjög skammt frá landi. Hvergi á Íslandi er eins stutt að komast norður yfir heimsskautsbaug eins og frá Raufarhöfn. Ferðin tekur um tvo og hálfan tíma og er margt að sjá því meðfram ströndinni er fjölbreytt fuglalíf, selir ofl. Að ferð lokinni fá allir farþegar séstakt skjal sem staðfestir komu þeirra Norður yfir Heimskautsbaug. Útsýnisferðir.Siglt er með ströndinni til suðurs og inn Þistilfjörð og að Rauðanesi. Á þeirri leið er margt að sjá svo sem stórbrotið landslag björg, hellar, nes, vogar og víkur. Fjölbreytt fuglalíf bjargfugla er á þessari leið og sjást þar flestar bjargfuglategundir. Ef heppnin er með er aldrei að vita nema að rekast megi á hval á leiðinni. Ferðin tekur um þrjá og hálfan tíma.
Miðnætursigling.
Þessa ferð ætti enginn að láta fram hjá sér fara því hvergi er miðnætursólin fallegri en hér. Í þessari ferð verður boðið uppá lifandi tónlist og rómantíkin látin ráða ríkjum. Góð ferð sem gleymist seint. Þessi ferð er ekki tímamæld því þar er tíminn afstætt hugtak.
Sjóstangveiði.
Frá Raufarhöfn er mjög stutt á fengsæl fiskimið og er því auðvelt að bjóða fjölskyldum upp á slíkar ferðir. Þeir sem lengra eru komnir geta líka fengið sitt því ekkert er meira gaman en að draga vænan þorsk eða góðan ufsa og ekki myndi spilla fyrir að fá lúðu eða kannski lax?.
Báturinn.
Björn Jónsson ÞH-345 er báturinn sem verður notaður í þessar siglingar. Björn er af gerðinni Cleópatra 38, smíðuð hjá Trefjum í Hafnafirði árið 2000 og er með tvær vélar. Um borð er góð aðstæða fyrir farþega öll helstu siglingatæki og öryggisbúnaður sem uppfylla þarf til fólksfluttninga. Í öllum ferðum verður boðið upp á veitingar.Arctic travel býður uppá fjölbreyttar ferðir í áætlun alla daga frá 10. júní til 30. september sem eru:
Sjóstöng, útsýnissigling og miðnætursigling. Sendið okkur fyrirspurnir og við munum einnig aðstoða við að skippuleggja ferð að eigin ósk. Hámarksfjöldi í ferð eru 20 farþegar. Veður getur haft áhrif á ferðir.
Bóknir og upplýsingar í símum 893-8386 og 845-9539




